Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2014


  • Hagtíðindi
  • 19. september 2014
  • ISSN: 1670-4665


Sækja pdf skjal
Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2014 jókst um 0,6% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2013. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 2,8%. Einkaneysla jókst um 4%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 7,8%. Útflutningur jókst um 3,7% og innflutningur nokkru meira, eða um 9%.

Til baka