Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2014


  • Hagtíðindi
  • 5. desember 2014
  • ISSN: 1670-4665


Sækja pdf skjal
Landsframleiðslan á fyrstu níu mánuðum ársins 2014 jókst um 0,5% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2013. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 3%. . Einkaneysla jókst um 2,8%, samneysla um 1,1% og fjárfesting um 12%. Útflutningur jókst um 5,1% og innflutningur nokkru meira, eða um 10,8%.

Til baka