Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2016


  • Hagtíðindi
  • 9. september 2016
  • ISSN: 1670-4770


Sækja pdf skjal
Landsframleiðslan á 2. ársfjórðungi 2016, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 3,7% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 2,1% frá 1. ársfjórðungi 2016. Landsframleiðslan á fyrstu sex mánuðum ársins 2016 jókst um 4,1% að raungildi borið saman við fyrstu sex mánuði ársins 2015. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 9,4%. Einkaneysla jókst um 7,7%, samneysla um 0,6% og fjárfesting um 29,5%. Útflutningur jókst um 5,3% og innflutningur nokkru meira, eða um 16,2%.

Til baka