Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2016


  • Hagtíðindi
  • 13. september 2016
  • ISSN: 1670-4770


Sækja pdf skjal
Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 6,6 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2016. Það er mun jákvæðari niðurstaða en á sama tíma 2015 þegar afkoman var neikvæð um 11,6 milljarða króna. Tekjuafgangurinn nam 1,1% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 2,7% af tekjum hins opinbera. Fyrstu sex mánuði ársins var afgangurinn 371,5 milljarðar eða 43,1% af tekjum tímabilsins.

Til baka