Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2016


  • Hagtíðindi
  • 9. mars 2017
  • ISSN: 1670-4770


Sækja pdf skjal
Landsframleiðslan á 4. ársfjórðungi 2016 jókst að raungildi um 11,3% frá sama ársfjórðungi fyrra árs en það er mesta aukning sem mælst hefur frá því á 4. ársfjórðungi 2007. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 8,4%. Einkaneysla jókst um 7,2%, samneysla um 1,7% og fjárfesting um 18,6%. Útflutningur jókst um 14% á sama tíma og innflutningur jókst um 8,8%.

Til baka