Vinnumarkaður á 1. ársfjórðungi 2017


  • Hagtíðindi
  • 17. maí 2017
  • ISSN: 670-4770


Sækja pdf skjal
Á fyrsta ársfjórðungi 2017 voru að jafnaði 197.100 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 191.500 starfandi og 5.600 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 82,7%, hlutfall starfandi mældist 80,4% og atvinnuleysi var 2,9%. Frá fyrsta ársfjórðungi 2016 fjölgaði starfandi fólki um 7.200 og hlutfallið jókst um 1,2 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 500 manns og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli lækkaði um 0,4 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 2.300 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,5%. Atvinnulausir karlar voru 3.300 eða 3,2%. Atvinnuleysi var 2,6% á höfuðborgarsvæðinu og 3,3% utan þess.

Til baka