Rannsókn á útgjöldum heimilanna 2011–2014


  • Hagtíðindi
  • 2. mars 2018
  • ISSN: 1670-4770


Sækja pdf skjal
Niðurstöður úr samfelldri rannsókn á útgjöldum heimilanna eru nú birtar fyrir árin 2011–2014 á verðlagi ársins 2014. Niðurstöðurnar eru sundurliðaðar eftir heimilisgerð, búsetu, útgjalda- og tekjuhópum, auk þess sem heildarniðurstöður eru bornar saman við niðurstöður áranna 2010–2012. Þá eru birtar niðurstöður eftir árum fyrir helstu útgjaldaflokka og bakgrunnsbreytur. Í úrtakinu voru 4.844 heimili. Alls tóku 1.924 heimili þátt í rannsókninni og var svörun 39,7%.

Til baka