Landsframleiðslan 2017
Landsframleiðsla jókst að raungildi um 3,6% á árinu 2017 og er nú 15,3% meiri en hún var árið 2008. Einkaneysla og fjárfesting vógu þyngst í vexti landsframleiðslunnar en alls jukust þjóðarútgjöld um 6,8%. Einkaneysla jókst um 7,8%, samneysla um 2,6% og fjárfesting um 9,3%.