Hagstofa Íslands hefur rannsakað launakostnað frá árinu 2007. Tilgangur með gerð launakostnaðarvísitölunnar er að veita aðilum vinnumarkaðarins og hinum ýmsu greiningaraðilum færi á að skilja verðbólguþróun og þróun vinnumarkaðarins, fylgjast með breytingum á launakostnaði og hafa sambærilegan mælikvarða á launakostnaði á milli landa Evrópusambandsins.