Hagstofa Íslands stendur ekki fyrir sjálfstæðri gagnasöfnun um samgöngumál. Samgöngustofa veitir upplýsingar um loftför úr loftfaraskrá sem er hin lögformlega skráning á eignarhaldi loftfara hér á landi, einnig veitir hún upplýsingar um ökutæki úr ökutækjaskrá ásamt gögnum um umferðarslys. Tölur um fjölda farþega innanlands koma frá Flugstoðum, en þær veita einnig upplýsingar um póst-, vöru- og farþegaflutninga milli landa. Gögn um farþegafjölda á höfuðborgarsvæðinu eru fengin frá Strætó bs. og Vegagerðin útvegar tölur um þjóðvegi landsins.