Hagtölur um vatnafar eru unnar úr gögnum frá Veðurstofu Íslands. Veðurstofan reiknar heildarúrkomu fyrir landið allt sem grunn að tölfræði um vatnaauðlindir. Einnig skila allar vatnsveitur á landinu, bæði almenningsveitur og einkaveitur, gögnum um vatnsnotkun sem Veðurstofan heldur utan um fyrir hönd Orkustofnunar og Umhverfisstofnunar.