- Hagtíðindi
 
              
              
    	      - 07. febrúar 2019
 
    	      
              - ISSN: 1670-4770
 
              
              
	      
              - 
		Skoða PDF
              
 
              
            
	   
          
          Á fjórða ársfjórðungi 2018 voru að jafnaði 203.700 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 198.900 starfandi og 4.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka var 80,5%, hlutfall starfandi 78,6% en atvinnuleysi 2,4%. Atvinnulausar konur voru 2.100 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 2,3%. Atvinnulausir karlar voru 2.700 eða 2,4%.