Vefskil
Fjárhagsupplýsingar sveitarfélaga
Rafræn gagnaskil fyrir fjárhagsupplýsingar sveitarfélaga
Fjárhagsupplýsingum sveitarfélaga er safnað ársfjórðungslega. Til þess að geta sent fjárhagsupplýsingar rafrænt þarf að hafa notandanafn og lykilorð. Vefslóð að rafrænum skilum er https://rannsokn.hagstofa.is/vefskil2/Default.aspx?col=fjrhsvf
Hagstofan, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið standa nú sameiginlega að innsöfnun fjárhagsupplýsinga sveitarfélaganna. Verkefnið hefur verið unnið undir hatti Upplýsingaveitu sveitarfélaganna. Söfnunin gerir ráð fyrir mun ítarlegri skilum úr bókhaldi sveitarfélaganna. Markmiðið er að sveitarfélögin þurfi aðeins að skila gögnum einu sinni og á einum stað. Verkefnið er mikil lyftistöng fyrir hagskýrslugerðina en um leið fást miklu betri upplýsingar um stöðu sveitarfélaganna þeim sjálfum og íbúum þeirra til hagsbóta.
Efnisleg lýsing á skilunum er að finna í reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga[GG2] . Samskvæmt henni eiga sveitarfélögin að skila ársfjórðungslega sundurliðuðum upplýsingum úr bókhaldi sínu. Skýrslurnar komi beint úr bókhaldskerfum sveitarfélaganna. Gögnunum er skilað á xml formi til Hagstofu.
- Auglýsing nr. 515/2011 um flokkun og greiningu í bókhaldi og reikningsskilum sveitarfélaga
- Handbók um reikningsskil og fjármál sveitarfélaga
Upplýsingaveita sveitarfélaganna - xml gagnaskil
Format skýrslu
Nýjasta úttgáfa er 0.4 frá 4.9.2012. (Bætt við eigindum vegna sendanda og tegund breytinga.)
Vefþjónusta
Skila skal skýrslunum í gegnum vefþjónustu, til þess þarf notandanafn og lykilorð.
- Vefþjónusta er á slóðinni (wsdl): https://services.hagstofa.is/wsdl.aspx?service=upplysingaveita-svf_v01
- Vefþjónusta - leiðbeiningar
- Schema eru einnig aðgengilegt á vef hagstofunnar: /schema/innsofnun/upplysingaveitaSvf/v01/fjrhsvf.xsd
- Console forrit til að prófa þjónustu (uppfært 19. ágúst 2011)
- Console forrit v02 (uppfært 23. mars 2016)
- Vefþjónusta vegna AccessKey og metadata fyrir vefþjónustur Hagstofunnar: https://services.hagstofa.is/webservices/metadata.asmx
Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Ágústsson í síma 528 1226