Jafnlaunavottun 2023-2026

Markmið jafnlaunastefnu Hagstofu Íslands er að allt starfsfólk stofnunarinnar njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að ómálefnalegur launamunur sé ekki til staðar.

Hagstofustjóri ber ábyrgð á jafnlaunakerfi Hagstofu Íslands. Hann ber einnig ábyrgð á jafnlaunastefnu og að þeim lagalegu kröfum og öðrum kröfum sem fylgja jafnlaunakerfinu sé framfylgt. Mannauðsstjóri er fulltrúi stjórnenda varðandi jafnlaunakerfið og er ábyrgur fyrir innleiðingu og viðhaldi þess í samræmi við staðalinn ÍST 85:2012.

Markmið Hagstofunnar er að vera eftirsóttur vinnustaður þar sem allir hafa jöfn tækifæri í starfi óháð kyni.

Til að ná því markmiði hefur og mun Hagstofan gera eftirfarandi:

  • Innleiða vottað jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012, það skjalfest og því viðhaldið.
  • Fylgja viðeigandi lagalegum kröfum og öðrum kröfum sem í gildi eru og hafa áhrif á jafnlaunakerfið.
  • Framkvæma árlega launagreiningu þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf og þannig kanna hvort mælist munur á launum eftir kyni. Niðurstöður greininganna skulu kynntar starfsfólki.
  • Bregðast við óútskýrðum launamun með stöðugum umbótum og eftirliti.
  • Kynna stefnuna fyrir öllu starfsfólki stofnunarinnar og skal hún vera aðgengileg á innri vef Hagstofunnar. Stefnan skal einnig vera aðgengileg almenningi á ytri vef stofnunarinnar.

Jafnlaunastefnan er órjúfanlegur hluti af launastefnu Hagstofu Íslands.