Eldri útgáfur
Hagskinna
Hagskinna er eitt viðamesta rit Hagstofunnar frá upphafi. Bókin kom út árið 1997 og í henni eru tölulegar upplýsingar um íslenskt samfélag og þróun þess eins langt aftur í fortíðina og heimildir ná. Elstu tölur í ritinu eru frá byrjun 17. aldar en talnaefnið nær til ársins 1990. Meðal efnis má finna tölur um mannfjölda, atvinnuskiptingu, vöruskipti við útlönd, laun, neyslu, verðlag, vísitölur, fjármálastarfsemi, þjóðarframleiðslu, félags- og heilbrigðismál, skólamál, menningarstarfsemi o.fl.
Hagskinna var einnig gefin út á geisladiski en hann er uppseldur.
Bókin er til sölu í afgreiðslu Hagstofu Íslands að Borgartúni 21a í Reykjavík. Einnig má senda tölvupóst á upplysingar@hagstofa.is og panta bókina. Bókin kostar 3.900 kr.
Einnig er hægt að nálgast Hagskinnu rafrænt á Baekur.is Hagskinna
Á vef Hagstofunnar um sögulegar hagtölur er í boði að hlaða niður Hagskinnu sem zip-skrá.