Út er komið fyrsta hefti í efnisflokknum Heilbrigðis- félags- og dómsmál í nýrri ritröð Hagtíðinda árið 2004. Fjallað er um fjölda mála hjá héraðsdómstólum á árinu 2003 og þróun í málafjölda og afgreiðslu þeirra frá árinu 1993, sem var fyrsta heila árið sem héraðsdómstólar störfuðu. Stærstu málaflokkar eru almenn einkamál og opinber mál, en einnig er að finna upplýsingar um smærri málaflokka, svo sem gjaldþrotaúrskurði, rannsóknarúrskurði o.fl.
Héraðsdómar 2003 - útgáfur