Ferðaþjónusta gegndi sem fyrr mikilvægu hlutverki í hagkerfinu árið 2025 og nam 8,8% af vergri landsframleiðslu, samanborið við 8,2% árið 2024, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum ferðaþjónustureikninga. Gistiþjónusta var enn og aftur í fararbroddi í greininni og nam um 2,6% af vergri landsframleiðslu. Þá var framlag ferðaþjónustunnar til hagvaxtar árið 2025 um 0,1 prósentustig samanborið við -0,4 prósentustig árið 2024.
Nærri ein af hverjum tíu vinnustundum árið 2025 tengdist ferðaþjónustu
Áætlað er að um 30,5 milljón vinnustunda árið 2025 megi rekja með beinum hætti til ferðaþjónustu sem jafngildir um 9,5% heildarvinnustunda hér á landi það árið. Til samanburðar var þetta hlutfall um 10,2% árið 2024. Gistiþjónusta vó sem áður þyngst í fjölda vinnustunda og var hlutur hennar í heildarvinnustundum um 3,2%.
Heildarneysla ferðamanna jókst um 4,2%
Árið 2025 nam heildarneysla ferðamanna á Íslandi, bæði erlendra og innlendra, rúmum 914 milljörðum króna og jókst um 4,2% frá fyrra ári. Útgjöld ferðamanna, það er neysla að frádreginni reiknaðri húsaleigu og útgjöldum vinnuveitenda, námu rúmlega 870 milljörðum króna sem er aukning um 3,9% frá fyrra ári. Þegar útgjöld ferðamanna eru hins vegar mæld á föstu verðlagi jukust þau aðeins um 0,8% og höfðu verðlagshækkanir því veruleg áhrif á vöxt útgjalda á verðlagi hvers árs.
Útgjöld erlendra ferðamanna á föstu verðlagi dróst saman
Útgjöld erlendra ferðamanna námu rúmum 540 milljörðum króna árið 2025 og jukust því um 0,2% á milli ára. Þyngst vó gistiþjónusta eða um 27% og var 7,5% vöxtur í þeim útgjaldalið hjá erlendum ferðamönnum frá fyrra ári. Aðrir veigamiklir liðir á árinu voru veitingaþjónusta, farþegaflutningar með flugi, bílaleigur og ferðaskrifstofur sem vógu samanlagt um 51% en drógust þeir liðir samanlagt saman um 0,6% frá fyrra ári.
Á föstu verðlagi drógust útgjöld erlendra ferðamanna saman frá fyrra ári um sem nemur 2,5%. Gistiþjónusta jókst um 3,5% á föstu verðlagi og jukust útgjöld til bílaleiga um 12,2%. Aftur á móti drógust aðrir veigamiklir liðir í útgjöldum erlendra ferðamanna saman á milli ára. Þannig dróst til að mynda veitingaþjónusta saman um 2,1% á föstu verðlagi og drógust farþegaflutningar með flugi saman um 8,1%.
Útgjöld innlendra ferðamanna námu rúmlega 329 milljörðum króna árið 2025 og jukust því um 10,7% frá fyrra ári. Þyngst vógu gistiþjónusta og ferðaskrifstofur, sem telja samanlagt rúmlega helming allra útgjalda innlendra ferðamanna, sem jukust um 26,5% og 12,6%. Á föstu verðlagi jukust útgjöld innlendra ferðamanna um 6,8%.
Framlag ferðaþjónustu til hagvaxtar var 0,1 prósentustig
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum ferðaþjónustureikninga jókst vinnsluvirði ferðaþjónustunnar um 5,5% árið 2025 samanborið við fyrra ár. Á föstu verðlagi jókst vinnsluvirðið þó einungis um 1,0%. Vöxtinn má helst rekja til gistiþjónustu en bílaleigur og ferðaskrifstofur gegndu einnig lykilhlutverki.
Árið 2025 var framlag ferðaþjónustunnar til hagvaxtar um 0,1 prósentustig, en þjóðhagsreikningar gefa til kynna að hagvöxtur hafi verið 1,3% það árið. Hefur framlag ferðaþjónustunnar til hagvaxtar því aukist frá árinu 2024 þegar það var neikvætt um 0,4 prósentustig. Þá jókst framleiðni vinnuafls í ferðaþjónustunni um 8,8% frá fyrra ári eftir að hafa dregist saman um 6,5% árið 2024. Vert er að athuga að þessar niðurstöður eru háðar bráðabirgðamati framleiðsluuppgjörs þjóðhagsreikninga á vinnsluvirði atvinnugreina árið 2025 og geta niðurstöðurnar því breyst við næstu birtingu framleiðsluuppgjörsins.
Um gögnin
Ferðaþjónustureikningar (e. tourism satellite accounts) eru hliðarreikningar þjóðhagsreikninga og er ætlað að leggja mat á hlut ferðaþjónustunnar í hagkerfinu og þróun hennar hérlendis. Með ferðaþjónustu er átt við þjónustu við bæði innlenda og erlenda ferðamenn á Íslandi.
Rétt er að árétta að áður birtar niðurstöður ferðaþjónustureikninga hafa verið endurskoðaðar samhliða birtingu ferðaþjónustureikninga fyrir árið 2025. Þar sem ferðaþjónustureikningar byggja á niðurstöðum ráðstöfunaruppgjörs og framleiðsluuppgjörs ná endurskoðanir sem gerðar eru í þeim uppgjörum einnig til ferðaþjónustureikninga.