FRÉTT EFNAHAGUR 10. JÚNÍ 2025

Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins árið 2024 er áætlað 93 milljarðar sem er 4% aukning frá árinu 2023. Áætlað er að 66% framleiðsluvirðisins teljist til búfjárræktar en 25% til nytjaplönturæktar.

Gert er ráð fyrir að kostnaður við aðfanganotkun verði 61 milljarður króna árið 2024 sem er tæplega 3% aukning frá fyrra ári. Aðfanganotkun er stærsti útgjaldaliðurinn, 65% af heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins, sem er svipað og það var á fyrra ári. Rétt er að benda á að mat á aðfanganotkun er háð nokkurri óvissu og þar með verður mat á hlutdeild annarra útgjaldaliða einnig óvisst.

Áætlunin byggir á lokaúttekt fyrir árið 2023 og svo fyrirliggjandi upplýsingum um magn- og verðbreytingar á landbúnaðarvörum árið 2024.

Framleiðsluvirði 90 milljarðar árið 2023
Árið 2023 var heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins metið 90 milljarðar króna. Virði afurða búfjárræktar, þ.e. framleiðsla dýra og dýraafurða, vegur þar langþyngst eða um 65% en virði afurða nytjaplönturæktar vegur um 27%. Tekjur af landbúnaðarþjónustu eru innan við 1% af heildar-framleiðsluvirðinu og tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi eru tæp 8%.

Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins jókst um rúm 9% frá fyrra ári. Aukninguna má rekja til hærra afurðaverðs. Heildaraðfanganotkun árið 2023 nam 59 milljörðum króna sem er tæp 10% aukning frá fyrra ári. Aðfanganotkun er stærsti útgjaldaliðurinn og vegur rúm 66% af framleiðsluvirðinu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.