FRÉTT FÆDDIR OG DÁNIR 28. APRÍL 2022

Fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi árið 2021 var 4.879 sem er fjölgun frá árinu 2020 þegar 4.512 börn fæddust. Einungis þrisvar áður hafa fleiri lifandi fædd börn komið í heiminn á einu ári, árin 2009-2010 og 1960. Alls fæddust 2.576 drengir og 2.303 stúlkur en það jafngildir 1.119 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum.

Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til að viðhalda mannfjölda til lengri tíma litið. Árið 2021 var frjósemi íslenskra kvenna 1,82 börn á ævi hverrar konu og jókst hún frá árinu 2020 en þá var frjósemi 1,72.

Aldursbundin fæðingartíðni aldrei verið lægri á meðal mæðra undir tvítugu
Fæðingartíðni mæðra undir tvítugu var í fyrra 3,3 börn á hverjar 1.000 konur. Það er afar lágt í samanburði við tímabilið 1961-1965 þegar hún fór hæst en þá fæddust 84 börn á hverjar 1.000 konur undir tvítugu. Það þarf að fara aftur til ársins 1870 til að finna annað ár þar sem fæðingartíðni mæðra undir tvítugu fór undir fjögur börn á hverjar 1.000 konur.

Frá árinu 1932 hefur aldursbundin fæðingartíðni alltaf verið hæst í aldurshópunum 20-24 ára og 25-29 ára en árið 2019 varð sú breyting að fæðingartíðnin reyndist hæst innan aldurshópsins 30-34 ára. Það sama átti við um árið 2020 en þá fæddust 113,1 börn á hverjar 1.000 konur á aldursbilinu 30-34 ára en 108,6 á aldursbilinu 25-29 ára. En árið 2021 var aldursbundin fæðingartíðni aftur hæst í aldurshópnum 25-29 ára og fæddust þá 121 börn á hverjar 1.000 konur á því aldursbili.

Meðalaldur mæðra hefur hækkað jafnt og þétt síðustu áratugi og eignast konur nú sitt fyrsta barn að jafnaði síðar á ævinni en áður. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en eftir miðjan níunda áratuginn hefur meðalaldur farið hækkandi og var 28,6 ár í fyrra.

Aðferðir
Tölur um fæðingar ná til allra barna mæðra sem eiga lögheimili á Íslandi, hvort heldur sem þau eru fædd innanlands eða utan. Börn sem fædd eru á Íslandi af mæðrum sem eiga lögheimili erlendis eru fyrir vikið ekki talin með.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1030 , netfang mannfjoldi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.