FRÉTT FÉLAGSMÁL 29. APRÍL 2014

Árið 2012 veittu sveitarfélög 4.260 einstaklingum með fötlun þjónustu á 15 þjónustusvæðum og hafði þeim fjölgað um 66 (1,6%) frá árinu áður. Af þeim sem fengu þjónustu voru 1.599 börn 17 ára og yngri (37,5%). Drengir voru fleiri en stúlkur í þessum hópi eða rúm 60%, enda voru þeir í miklum meirihluta í þessum aldurshópi (tæp 72%). Í aldurshópnum 18–39 ára voru karlar tæpt 61%, en í aldurshópnum 67 ára og eldri voru konur mun fleiri eða 68%. Þjónustuþegar voru 1,3% landsmanna, 2% barna og 1,1% fólks 67 ára og eldra. Árið 2012 voru 23% þessara einstaklinga í sérstökum búsetuúrræðum, en 45% bjuggu hjá foreldrum.

Þegar litið er til fjölda þjónustuþátta og magn þjónustu sem fólk með fötlun 18 ára og eldra fékk árið 2012 kemur fram að 2.300 (89,1%) fengu einn þjónustuþátt eða fleiri. Árið 2011 voru þeir 1.964 (83%). Með þrjá þjónustuþætti eða fleiri voru 763 (29,6%) árið 2012, en 326 (13,8%) árið 2011.

Þjónusta sveitarfélaga við fatlað fólk 2011-2012 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.