FRÉTT FÉLAGSMÁL 11. SEPTEMBER 2024

Þessi fréttatilkynning var leiðrétt 11. september 2024 kl. 11:45 frá upprunalegri útgáfu. Gildi fyrir óleiðréttan launamun fyrir árið 2022 var sagt 9,1% en hið rétta er 8,6% en tölur fyrir árið 2022 voru endurreiknaðar fyrir þessa útgáfu. Eingöngu var um villu í frétt að ræða en útgefið talnaefni var rétt.

Óleiðréttur launamunur karla og kvenna1 var 9,3% árið 2023 og er heldur meiri en á fyrra ári þegar hann var 8,6%. Launamunur jókst eftir aldri og var munurinn 0,6% á meðal 24 ára og yngri, 9,5% í aldurshópnum 35-44 ára og 14,9% meðal 55-64 ára. Mikill munur var á launamuni eftir atvinnugreinum. Í fjármála- og vátryggingastarfsemi var munurinn 25,9% en minnstur í atvinnugreininni vatnsveita, fráveita, meðhöndlun úrgangs og afmengun eða – 1,1%.

Óleiðréttur munur á tímakaupi karla og kvenna eftir starfsstétt var á bilinu – 2,4% hjá skrifstofufólki og 22.9% á meðal tækna og sérmenntaðs starfsfólks. Ein helsta skýring þess launamunar sem er til staðar á Íslandi er kynbundin skipting í störf og atvinnugreinar samanber rannsókn á launamun karla og kvenna sem kom út árið 2021. Þar kemur fram að um 43% kvenna sem voru á vinnumarkaði árið 2019 störfuðu hjá hinu opinbera en einungis um 15% karla. Árið 2023 var launamunur 13,9% á almennum vinnumarkaði, 8,0% hjá starfsfólki ríkisins og 4,3% á meðal starfsfólks sveitarfélaga.

Hlutfallslega fleiri konur með lágt tímakaup samanborið við karla
Launadreifing eftir kyni fyrir allan vinnumarkaðinn sýnir að hlutfallslega fleiri konur eru með lægra tímakaup en karlar. Hátt hlutfall yfirvinnustunda hefur áhrif til hækkunar á tímakaupi þar sem yfirvinnustund er að jafnaði dýrari en dagvinnustund. Karlar vinna að jafnaði meiri yfirvinnu en konur sem skýrir muninn að hluta. Óleiðréttur launamunur er samanburður á meðaltali og þar sem laun eru almennt ekki normaldreifð þá hafa útgildi (há laun) áhrif til hækkunar á meðaltali. Þar sem algengara er að karlar séu með laun í hæsta launastigi getur það því ýkt launamuninn.

Um óleiðréttan launamun
Útreikningur á óleiðréttum launamun (e. unadjusted gender pay gap) byggir á aðferðum rannsóknar Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, um laun einstaklinga (e. Structure of Earnings Survey). Við útreikninga er stuðst við laun í októbermánuði ár hvert þar sem um er að ræða grunnlaun og aukagreiðslur sem eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili hjá fyrirtæki eins og álags- og bónusgreiðslur, vaktaálag og eftirvinna. Í launum er einnig tilfallandi yfirvinna en óreglulegar greiðslur sem falla til í október eru undanskildar.

Reiknað er meðaltímakaup karla annars vegar og kvenna hins vegar og mismunur þess sem hlutfall af meðaltímakaupi karla túlkað sem óleiðréttur launamunur. Ekki er tekið tillit til skýringarþátta sem geta haft áhrif á laun einstaklinga svo sem starf, menntun, aldur og starfsaldur. Samsetning vinnutíma hefur áhrif á tímakaupið þar sem yfirvinnustundir eru að jafnaði dýrari en hver stund í dagvinnu. Tímakaupið verður þar af leiðandi því hærra sem meiri yfirvinna er hluti launa.

Niðurstöðurnar byggja á gögnun launarannsókar Hagstofu Íslands. Árið 2023 voru um 209 þúsund einstaklingar á vinnumarkaði samkvæmt gögnum Hagstofunnar um fjölda starfandi launafólks. Í þeim atvinnugreinum, sem úrtak launarannsóknar er valið úr, voru um 176 þúsund einstaklingar árið 2023 (sama heimild). Þetta þýðir að sá hópur, sem úrtakið er valið úr, er um 84% af heildarfjölda á vinnumarkaði. Um það bil 119 þúsund einstaklingar komu að minnsta kosti einu sinni fyrir í gagnasafni launarannsóknar árið 2023. Til að fyrirtæki eigi möguleika á að lenda í úrtaki verður fjöldi starfsmanna að vera 10 eða fleiri. Fyrirtæki í úrtaki skilar gögnum fyrir allt sitt starfsfólk rafrænt til Hagstofa Íslands. Rétt er að benda á að við samanburð á milli ára geta breytingar stafað af breytingum á samsetningu úrtaks eða samsetningu á vinnumarkaði. Til dæmis voru færri starfandi árið 2021 en 2019 vegna kórónuveirufaraldursins.

1 Reiknað er reglulegt heildartímakaup karla annars vegar og kvenna hins vegar og mismunur þess sem hlutfall af meðaltímakaupi karla túlkað sem óleiðréttur launamunur. Hlutfallið sýnir þannig hversu mikið lægri laun konur hafa að jafnaði en karlar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.