Hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja með fjóra eða fleiri stjórnarmenn var 43,4% í almennum hlutafélögum árið 2025 og 36,9% í einkahlutafélögum. Árið 2024 voru samsvarandi hlutföll 41,9% og 38,9%.
Í stjórnum stórra fyrirtækja með þrjá stjórnarmenn var hlutfall kvenna 33,3% fyrir almenn hlutafélög og 35,7% fyrir einkahlutafélög. Samsvarandi hlutfall var 33,3% og 32,5% á fyrra ári. Í stórum einkahlutafélögum með tvo stjórnarmenn var samsvarandi hlutfall 28,6% en var 22,8% árið 2024.
Heildarþróun síðustu tveggja áratuga sýnir hækkandi hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja, jafnvel þótt árlegar breytingar hafi verið smávægilegar og ýmist leitt til hækkunar eða lækkunar eftir einstökum gerðum stjórnarforma. Þetta sést árið 2025 á því hvernig hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja hækkar frá fyrra ári fyrir allar stærðir stjórna og öll rekstrarform, að undanskildum einkahlutafélögum með fjóra eða fleiri stjórnarmenn, þar sem hlutfallið lækkar. Almennt má merkja að hlutfall kvenna í stjórnum félaga sé hærra bæði þegar stærð stjórna og stærð fyrirtækja er meiri heldur en minni. Þá er hlutfallið hærra í almennum hlutafélögum en í einkahlutafélögum.
Blandað kynjahlutfall í stjórn
Ef litið er til fyrirtækja sem hafa 50 launamenn eða fleiri hækkaði hlutfall þeirra félaga sem hafa blandaða samsetningu kynja í stjórn frá fyrra ári um 0,7 til 7,4 prósentustig, fyrir utan einkahlutafélög með 4 eða fleiri stjórnarmenn þar sem hlutfallið lækkaði úr 80,9% í 78,8% á milli ára. Hlutfallið er hæst fyrir almenn hlutafélög með fjóra eða fleiri stjórnarmenn, þar sem 90,7% félaga eru með hlutfall kynja í stjórn á bilinu 40%-60%, og er þetta í fyrsta skipti sem hlutfall félaga sem uppfylla það skilyrði fer yfir 90%.
Stærsta breytingin frá fyrra ári var fyrir einkahlutafélög með 2 stjórnarmenn þar sem hlutfall þeirra stjórna sem höfðu meðlimi sitt af hvoru kyni hækkaði úr 45,6% í 53,1%. Þetta er í fyrsta skipti sem meira en helmingur einkahlutafélaga með tvo stjórnarmenn og yfir 50 starfsmenn uppfyllir þetta skilyrði.
Árið 2010 voru sett lög þar sem kveðið er á um það að þegar stjórnarmenn séu þrír í félagi, þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn að jafnaði á ársgrundvelli, skuli hvort kyn eiga fulltrúa í stjórn og þegar stjórnarmenn eru fleiri en þrír í slíkum félögum skuli hlutfall hvors kyns ekki vera lægra en 40%. Þessi lög taka til almennra og opinberra hlutafélaga, einkahlutafélaga og samvinnu- og sameignarfélaga. Í tilfelli einkahlutafélaga er jafnframt tiltekið að hvort kyn skuli eiga fulltrúa í stjórn þegar stjórnarmenn eru tveir. Þessi lög tóku gildi í september árið 2013.
Stjórnarformenn og framkvæmdastjórar
Allt frá árinu 1999 hefur verið stöðug en hægfara aukning á hlutfalli kvenna í stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækja. Árið 2025 var þetta hlutfall 24,5%. Sömu sögu má segja um hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna en í lok árs 2025 var það 25,2%.
Einn einstaklingur skráður „kynsegin/annað“ í þjóðskrá var framkvæmdastjóri fyrirtækis á árinu 2025. Jafnframt voru þrír stjórnarmenn með sömu kynskráningu á árinu, þar af tvennt sem stjórnarformenn.
Tölur um fjölda stjórnarmanna, stjórnarformanna og framkvæmdastjóra eru birtar eftir kyni og aldri, atvinnugrein og stærð fyrirtækis og tölur um stjórnarmenn eru auk þess birtar eftir rekstrarformi og stærð stjórna. Kyn fer eftir skráningu kyns í þjóðskrá. Fylgt er orðalagi sem tekið var upp í samráði við Samtökin '78. Frá síðustu birtingu hafa bæst við ítarlegri gögn um virkni fyrirtækja árið 2024 og hafa fyrri tölur verið uppfærðar með tilliti til þess.
Þegar tekið er mið af stærð fyrirtækja við skráningu stjórnarmanna í fyrirtækjaskrá Skattsins er miðað við fjölda ársverka sem gefinn er upp í ársreikningum. Við birtingu Hagstofu Íslands á tölum um kynjahlutföll stjórnarmanna fyrirtækja og félaga er á hinn bóginn notast við fjölda launamanna samkvæmt staðgreiðsluskrá þegar metin er stærð fyrirtækja. Því er ekki óeðlilegt að einhver hluti stjórna stórra fyrirtækja samkvæmt tölum Hagstofu Íslands liggi utan þess ramma sem unnið er eftir við skráningu stjórnarmanna í stórum fyrirtækjum í fyrirtækjaskrá Skattsins.