Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur um stofnanaþjónustu og dagvistir aldraðra árið 2008. Frá árinu 1993 hefur Hagstofa leitað upplýsinga hjá rekstraraðilum. Í desember árið 2008 voru vistrými alls 3.461, þar af voru hjúkrunarrými á dvalar- og hjúkrunarheimilum alls 2.316 eða 66,9% vistrýma. Á milli áranna 2007 og 2008 fjölgar rýmum á dvalar- og/eða hjúkrunarheimilum um 47. Dvalarrýmum fækkaði um 90 en hjúkrunarrýmum fjölgaði um 137 á sama tíma. Árið 2008 voru rúm 54% vistrýma á höfuðborgarsvæðinu, en tæp 46% annarsstaðar.
Stofnanir með vistrými fyrir aldraða eftir tegund í desember 2007 og 2008 | |||||
2007 | 2008 | ||||
fjöldi | % | fjöldi | % | ||
Alls | 3.383 | 100,0 | 3.461 | 100,0 | |
Dvalar- og/eða hjúkrunarheimili | 2.927 | 86,5 | 2.974 | 85,9 | |
þar af | Dvalarrými | 748 | 22,1 | 658 | 19,0 |
þar af | Hjúkrunarrými | 2.179 | 64,4 | 2.316 | 66,9 |
Heilbrigðisstofnanir/sjúkrahús | 456 | 13,5 | 487 | 14,1 | |
þar af | Hjúkrunarrúm | 299 | 8,8 | 320 | 9,2 |
þar af | Öldrunalækningarrúm | 157 | 4,6 | 167 | 4,8 |
Alls bjuggu 3.284 á stofnunum með vistrými fyrir aldraða í desember árið 2008, þar af voru konur rúm 64%. Tæp 10% 67 ára og eldri bjuggu í vistrýmum í desember árið 2008. Þetta hlutfall var rúm 11% á landsbyggðinni en rúm 9% á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2008 bjuggu rúm 24% fólks 80 ára og eldra í vistrýmum aldraðra. Það á við um rúm 20% karla á þessum aldri og tæp 27% kvenna.
Talnaefni
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.