FRÉTT FÉLAGSMÁL 20. OKTÓBER 2009

Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur um stofnanaþjónustu og dagvistir aldraðra árið 2008.  Frá árinu 1993 hefur Hagstofa leitað upplýsinga hjá rekstraraðilum.  Í desember árið 2008  voru vistrými alls 3.461, þar af voru hjúkrunarrými á dvalar- og hjúkrunarheimilum alls 2.316 eða 66,9%  vistrýma.  Á milli áranna 2007 og 2008 fjölgar rýmum á dvalar- og/eða hjúkrunarheimilum um 47.  Dvalarrýmum  fækkaði um 90 en hjúkrunarrýmum fjölgaði um 137 á sama tíma.  Árið 2008 voru rúm 54% vistrýma á höfuðborgarsvæðinu, en tæp 46% annarsstaðar.

Stofnanir með vistrými fyrir aldraða eftir tegund í desember 2007 og 2008
    2007 2008
    fjöldi % fjöldi %
Alls   3.383 100,0 3.461 100,0
Dvalar- og/eða hjúkrunarheimili  2.927 86,5 2.974 85,9
þar af Dvalarrými 748 22,1 658 19,0
þar af Hjúkrunarrými  2.179 64,4 2.316 66,9
Heilbrigðisstofnanir/sjúkrahús  456 13,5 487 14,1
þar af Hjúkrunarrúm  299 8,8 320 9,2
þar af Öldrunalækningarrúm  157 4,6 167 4,8


Alls bjuggu 3.284 á stofnunum með vistrými fyrir aldraða í desember árið 2008, þar af voru konur rúm 64%.  Tæp 10%  67 ára og eldri bjuggu í vistrýmum í desember árið 2008.  Þetta hlutfall var rúm 11% á landsbyggðinni en rúm 9%  á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2008 bjuggu rúm 24%  fólks 80 ára og eldra í vistrýmum aldraðra.  Það á við um rúm 20% karla á þessum aldri og tæp 27% kvenna. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.