FRÉTT FÉLAGSMÁL 03. JÚNÍ 2010

Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur um stofnanaþjónustu og dagvistir aldraðra árið 2009.  Frá árinu 1993 hefur Hagstofa leitað upplýsinga hjá rekstraraðilum.  Í desember árið 2009  voru vistrými alls 3.369, þar af voru hjúkrunarrými á dvalar- og hjúkrunarheimilum alls 2.315 eða 68,7%  vistrýma.  Á milli áranna 2008 og 2009 fækkar rýmum á dvalar- og/eða hjúkrunarheimilum um 92.  Dvalarrýmum  fækkar um 46, fjöldi hjúkrunarrýma á hjúkrunar- og dvalarheimilum stendur í stað,  en rýmum á heilbrigðisstofnunum fækkar um 45 á sama tíma.  Árið 2009 voru rúm 54% vistrýma á höfuðborgarsvæðinu, en tæp 46% annarsstaðar.

Stofnanir með vistrými fyrir aldraða eftir tegund í desember 2008–2009
    2008 2009
    fjöldi % fjöldi %
Alls   3.461 100,0 3.369 100,0
Dvalar- og/eða hjúkrunarheimili  2.974 85,9 2.927 86,9
þ.a. Dvalarrými 658 19,0 612 18,2
þ.a. Hjúkrunarrými  2.316 66,9 2.315 68,7
Heilbrigðisstofnanir/sjúkrahús  487 14,1 442 13,1
þ.a. Hjúkrunarrúm  320 9,2 278 8,3
þ.a. Öldrunalækningarrúm  167 4,8 164 4,9

Alls bjuggu 3.191 á stofnunum með vistrými fyrir aldraða í desember árið 2009, þar af voru konur tæp 64%.  Rúm 9%  67 ára og eldri bjuggu í vistrýmum í desember árið 2009.  Þetta hlutfall var rúm 12% á landsbyggðinni en tæp 9%  á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2009 bjuggu tæp 23%  fólks 80 ára og eldra í vistrýmum aldraðra.  Það á við um tæp 19% karla á þessum aldri og rúm 25% kvenna. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.