FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 20. ÁGÚST 2015

Beint hlutfall ferðaþjónustu í vergri landsframleiðslu (VLF) hefur aukist úr 3,6% árið 2009 í 4,6% árið 2013. Hlutur ferðaþjónustu í VLF fór úr 56,3 milljörðum króna árið 2009 í 87,3 milljarða króna árið 2013, eða sem nemur 55% aukningu á nafnvirði. Milli áranna 2009 og 2013 hefur hlutur ferðaþjónustu af VLF vaxið nærfellt þrisvar sinnum hraðar en VLF (sem óx um 18,6%) yfir sama tímabil.

Vinnsluvirði í ferðaþjónustu hefur einnig aukist, úr 49,7 milljörðum króna árið 2009 í 76,4 milljarða króna árið 2013, sem er vöxtur upp á 54% á nafnvirði yfir sama tímabil. Vinnsluvirði í ferðaþjónustu er með sköttum að frádregnum styrkjum tekið saman sem hlutur ferðaþjónustu í vergri landsframleiðslu.

Hlutur ferðaþjónustu í VLF á Íslandi 2009-2013 á verðlagi hvers árs 
Milljarðar króna   2009 2010 2011 2012 2013
           
Hlutur ferðaþjónustu í VLF  56,3 54,1 61,4 74,8 87,3
   Hlutur ferðaþjónustu af heildarvinnsluvirði  (á grunnverði) 49,7 47,1 52,8 64,1 76,4
   Skattar í ferðaþjónustu að frádregnum styrkjum 6,6 7,0 8,6 10,7 10,9
Verg landsframleiðsla 1.585,5 1.621,0 1.703,2 1.780,2 1.880,9
Hlutfall ferðaþjónustu af VLF 3,6% 3,3% 3,6% 4,2% 4,6%


Ein af lykilbreytum í útreikningum á hlut ferðaþjónustunnar í þjóðhagsstærðum er hlutfall neyslu ferðamanna af framleiðsluvirði. Sex prósent framleiðsluvirðis komu til vegna ferðaþjónustu árið 2013, borið saman við 4,6% árið 2009. Þetta er yfir 3,9% meðaltali Evrópusambandsins, samkvæmt nýjustu niðurstöðum ferðaþjónustureikninga Evrópsku hagstofunnar (Eurostat) sem birtar voru 2013.

Hlutfall ferðaþjónustu í verslun er mismunandi eftir því um hvaða vörur og þjónustu er að ræða, nema fyrir ferðaskrifstofur og sumarhús (tilreiknaða leigu) er það 100% þar sem báðar greinar byggja að öllu leyti á neyslu ferðamanna. Hlutur ferðaþjónustu er hár fyrir gististaði og leigu á flutnings- og farartækjum, en lægri fyrir menningarþjónustu og smásölu.


 
Rétt er að vekja athygli á að í þessum ferðaþjónustureikningum eru einvörðungu mæld bein efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu innanlands á þjóðhagstærðir eins og VLF. Ekki er tekið tillit til afleiddra áhrifa ferðaþjónustu innanlands, né heldur til annarra þátta sem snúa að innri eftirspurn í ferðaþjónustu (s.s. fjárfestingu og opinberrar samneyslu í ferðaþjónustu).

Þessi samantekt Hagstofu Íslands á ferðaþjónustureikningum til að reikna áhrif ferðaþjónustu á íslenskan efnahag á árunum 2009-2013 er unnin með tilliti til alþjóðlegra staðla í ferðamálatölfræði og ferðaþjónustureikningum. Hún var unnin í samvinnu við Rannsóknamiðstöð ferðamála með fjármögnun Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. Meðal þess sem birt er nú eru niðurstöður úr ferðaþjónustureikningum fyrir hlut ferðaþjónustu í vinnsluvirði og í vergri landsframleiðslu (VLF).

Rétt er að taka fram að vegna breyttrar aðferðafræði eru þessar tölur ekki sambærilegar við þær sem Hagstofa Íslands birti fram til ársins 2011.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.