FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 10. OKTÓBER 2008

Hagstofa Íslands birtir nú í fyrsta sinn ferðaþjónustureikninga fyrir Ísland samkvæmt alþjóðlegum stöðlum. Niðurstöður þessara reikninga sýna meðal annars að árin 2000-2006 var hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu að meðaltali 4,6%.  Árið 2006 námu heildarkaup á ferðaþjónustu innanlands tæplega 135 milljörðum króna, eða sem svarar til 11,5% af landsframleiðslu. Kaupin skiptust þannig að kaup erlendra ferðamanna voru 70,6 milljarðar króna eða 6% af landsframleiðslu, neysla heimilanna var um 56 milljarðar eða 4,8% af landsframleiðslu og kaup fyrirtækja og opinberra aðila voru 8,2 milljarðar króna eða 0,7% af landsframleiðslu.
 
Af heildarneyslu ferðamanna innanlands árið 2006 námu kaup á flugþjónustu um 50 milljörðum króna, eða 37% af heildarneyslu ferðamanna. Kaup ferðamanna á gisti- og veitingaþjónustu voru um 26 milljarðar króna eða 19,3% af heildarferðaneyslu innanlands og skiptist hún nánast til helminga milli þessara tveggja atvinnugreina. Þjónusta ferðaskrifstofa við ferðamenn innanlands og á leið til annarra landa nam 7,7 milljörðum króna 2006 eða um 5,7% af heildarneyslu á ferðaþjónustu. Sala á bensíni, viðgerðum og viðhaldi bifreiða nam 7,3 milljörðum króna og önnur þjónusta tengd farþegaflutningum 12,4 milljörðum króna. Útgjöld ferðamanna til menningar og afþreyingar námu 5,2 milljörðum króna árið 2006. Loks mælist hlutur ferðaþjónustu í verslun og ýmissi annarri starfsemi 16,7 milljarðar króna.

Mynd 1. Kaup og framleiðsla á ferðaþjónustu innanlands 2006

Fjöldi erlendra ferðamanna sem sótti landið heim 2007 var samtals 485 þúsund samanborið við 303 þúsund árið 2000 og er vöxturinn því 60% á þessu árabili. Stöðugur vöxtur hefur verið í fjölda gistinátta erlendra ferðamanna á þessu tíma¬bili, en frá 2000 hefur vöxturinn verið rúmlega 51%.

Ferðaþjónustureikningar 2000-2006 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.