Gistinóttum á hótelum í júní fjölgaði um 11% milli ára
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 111.656 en voru 100.570 árið 2003. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi. Aukningin var mest á Suðurlandi þar sem gistinætur fóru úr 12.511 í 14.816 milli ára og fjölgaði þar með um rúm 18%. Á Norðurlandi eystra og vestra nam aukningin tæpum 14% þegar gistinæturnar fóru úr 10.633 í 12.108. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum 70.375 en voru 63.521 árið 2003, sem er aukning um tæp 11%. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum um tæp 8%, en gistináttafjöldinn fór úr 8.948 í 9.643 milli ára. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum um tæp 5%, fóru úr 4.957 í 4.714.
Fjölgun gistinátta á hótelum í júní á bæði við um íslenska (18%) og erlenda hótelgesti (10%).
Gistináttafjöldi á hótelum janúar-júní eykst um rúm 7% milli ára
Ef skoðaðir eru fyrstu sex mánuðir ársins miðað við árið í fyrra má sjá að gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum. Heildargistináttafjöldinn fyrir allt landið var 415.060 miðað við 386.441 árið 2003. Aukningin var þó hlutfallslega mest á Austurlandi, eða rúm 26%. Á öðrum landsvæðum nam aukningin 5-8% fyrir tímabilið janúar-júní. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um tæp 11% og gistinóttum útlendinga um rúm 6%.
Tölur fyrir 2004 eru bráðabirgðatölur og eru tölur fyrir aðra mánuði ársins uppfærðar mánaðarlega.