Gistináttafjöldi á hótelum í maí svipaður á milli ára
Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 80.100 en voru 79.739 árið 2003 (0,45%). Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi (-6,4%) og Norðurlandi (-2,6%). Aukningin á Austurlandi var um rúm 10% þegar gistinætur fóru úr 2.784 í 3.070 milli ára. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum nam aukningin rúmum 7% en gistináttafjöldinn fór úr 6.282 í 6.728 milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum 53.897 en voru 53.426 árið 2003, sem er 0,9% aukning.
Í apríl fjölgaði gistinóttum Íslendinga á hótelum um 6%, meðan gistinóttum útlendinga fækkaði um rúmt 1%.
Tölur fyrir 2004 eru bráðabirgðatölur og eru tölur fyrir aðra mánuði ársins uppfærðar mánaðarlega.