FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. NÓVEMBER 2004

Gistinóttum á hótelum í september fjölgaði um tæp 5% milli ára
Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 81.800 en voru 77.900 árið 2003 (5%). Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Norðurlandi þar sem fækkunin nam rúmum 15%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum milli ára um rúm 3.000 úr 50.100 í 53.300 og fjölgaði þar með um 6,3%. Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 11,4% þegar þær fóru úr 3.400 í 3.800. Á Suðurlandi voru gistinæturnar í september sl. 10.600 og fjölgaði þar með um 10,8%, en árið 2003 voru þær 9.500.  Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fór gistináttafjöldinn úr 6.500 í 7.100 milli ára og fjölgaði þar með um 8,8%.
  Fjölgun gistinátta er aðallega vegna Íslendinga og fjölgar íslenskum hótelgestum í öllum landshlutum nema á Norðurlandi. Aukning þeirra þeirra er þó einna mest á Austurlandi, Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu.
Tölur fyrir 2004 eru bráðabirgðatölur og eru tölur fyrir aðra mánuði ársins uppfærðar mánaðarlega.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.