Gistinætur á hótelum í ágúst voru rúmlega 608.700 á landsvísu eða um 2,3% fleiri en á sama tíma árið 2023 þegar þær voru 595.100. Mest fjölgaði gistinóttum á Suðurlandi (5,6%) og á höfuðborgarsvæðinu (4,9%). Minni aukning var á Norðurlandi eða 2,8%. Samdráttur var í öðrum landshlutum þar sem gistinóttum fækkaði um 13,8% á Austurlandi, 7,1% á Vesturlandi og Vestfjörðum og 5,6% á Suðurnesjum.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru tæplega 486.200, eða 80% af gistinóttum hótela, og var það fækkun um 2,9% miðað við fyrra ár. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 122.600, eða 20% gistinótta, og fjölgaði þeim töluvert frá fyrra ári eða um 29,9%.
Framboð hótelherbergja í ágúst jókst um 3,2% miðað við sama tíma árið 2023. Mest jókst fjöldi herbergja á Suðurlandi eða um rúmlega 8%. Herbergjanýting jókst lítillega á landinu í heild sinni eða um 0,4 prósentustig og var ástæðan einkum aukin nýting á höfuðborgarsvæðinu um 4,9 prósentustig. Nýting herbergja dróst engu að síður saman í öllum öðrum landshlutum (nema á Norðurlandi) og var mest breyting á Austurlandi (-9,7).
Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinótta í ágúst ríflega 1.442.000. Þar af voru gistinætur á hótelum og gistiheimilum tæplega 808.000 og gistinætur á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæði, orlofshús, o.s.frv.) um 634.000. Þetta var 0,5% aukning miðað við sama tíma árið 2023 en þá var heildarfjöldi gistinótta á öllum gististöðum tæplega 1.435.000.
Gistinóttum erlendra ferðamanna á öllum gististöðum fjölgaði um 2,3% frá fyrra ári og voru þær tæplega 1.152.000 eða 80% allra gistinótta. Gistinóttum Íslendinga fækkaði hins vegar um 5,9% á milli ára og töldu rúmlega 290.000 (20% allra gistinótta).
Óskráðar gistinætur
Gögn úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands sem notuð eru til grundvallar útreikningum á óskráðum gistinóttum erlendra ferðamanna í ágúst lágu ekki fyrir við birtingu. Áætlaðar tölur verða birtar við næstu útgáfu í október.
Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2024 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir ágúst 2024.