FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. SEPTEMBER 2026

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 2,5% í ágúst samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar rúmlega 653.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær tæplega 670.000 á sama tíma árið 2025.

Mest fækkaði gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu, eða um 5,3%, og var það fækkun um tæplega 16.000 gistinætur miðað við fyrra ár. Fjöldi gistinátta dróst einnig saman um tæplega 6.000 á Suðurlandi, eða 3,2%, auk þess sem 3,6% fækkun var á Austurlandi. Á Suðurnesjum fjölgaði gistinóttum hins vegar um 6,9% auk þess sem 4,3% aukning var á Vesturlandi og Vestfjörðum. Lítilsháttar aukning var svo á Norðurlandi (0,9%). Á fyrstu átta mánuðum ársins var samanlagður fjöldi gistinátta 0,3% minni en á sama tíma árið 2025.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 607.000, eða 93% af gistinóttum hótela, og var það 1,8% fækkun frá fyrra ári. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða rúmar 226 þúsund og fjölgaði þeim um 10,2% á milli ára. Þá fjölgaði gistinóttum Kínverja (40 þúsund) um 6,5%. Aftur á móti fækkaði gistinóttum Þjóðverja (55 þúsund) um 9,7% og Ítala (39 þúsund) um 11,3%. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 46.000 sem var 10,0% minna en í ágúst árið 2025.

Framboð hótelherbergja jókst um 1,7% á landinu í ágúst og var aukning í nær öllum landshlutum. Mest jókst framboð herbergja á Norðurlandi (6,1%) en einnig var 3,7% aukning á Suðurnesjum. Á Suðurlandi fjölgaði herbergjum um 1,1% og á Vesturlandi og Vestfjörðum um 1,0% en litlu minna á höfuðborgarsvæðinu (0,9%). Framboð hótelherbergja var svo óbreytt á Austurlandi. Alls voru 186 hótel starfandi í ágúst 2026 með 12.817 herbergi og var fjöldinn nokkuð meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls voru starfandi 182 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 59 hótel með alls 5.670 herbergi og 55 á Suðurlandi með 3.223 herbergi.

Herbergjanýting dróst saman á landinu í heild um 1,1 prósentustig. Mestur var samdrátturinn á Norðurlandi (-4,7 prósentustig) og höfuðborgarsvæðinu (-3,1 prósentustig). Þá dróst nýtingin einnig saman um 0,8 prósentustig á Austurlandi. Töluverð aukning var hins vegar í herbergjanýtingu á bæði Suðurnesjum og Vesturlandi og Vestfjörðum en nýtingin jókst á báðum svæðum um 5,0 prósentustig. Á Suðurlandi jókst nýting herbergja svo um 0,4 prósentustig. Í ágúst var mesta nýtingin á Suðurlandi (93,5%) og því næst á Suðurnesjum (91,7%).

Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í ágúst rúmlega 1.549.000. Þetta var 3,3% aukning miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum rúmlega 1.500.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða rúmlega 845.000 (rúmlega 653.000 á hótelum og rúmlega 192.000 á gistiheimilum) en um 704.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).

Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.

Tölur um gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum eru bráðabirgðatölur fyrir árið 2026. Gögn um gistinætur fyrir hótel og gistiheimili samanlagt og gististaði alls eru þannig áætluð fyrir árið 2026. Tölur um gistinætur hótela í ágúst 2026 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.