Gistinætur á skráðum gististöðum voru um 459.000 í apríl síðastliðnum samanborið við 84.900 árið áður. Gistinætur Íslendinga voru um 28% gistinátta, eða um 127.000, og erlendra ferðamanna um 332.000 (72%). Gistinætur í apríl ríflega fimmfölduðust á milli ára og var aukningin fyrst og fremst drifin áfram af fleiri erlendum ferðamönnum. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 346.000 (þar af 297.300 á hótelum) og um 113.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.).
Gistinætur á hótelum í apríl voru 297.300 og jókst hótelgisting í mánuðinum í öllum landshlutum. Mest var hlutfallsleg aukning á höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi. Gistinætur Íslendinga voru 79.000, eða 27% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur erlendra ferðamanna voru 218.300 (73%).
Á tólf mánaða tímabili, frá maí 2021 til apríl 2022, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 3.343.300 sem er tæplega fjórfalt meira en á sama tímabili árið áður. Aukning var í öllum landshlutum á þessu tímabili.
Framboð hótelherbergja í apríl jókst um 54% frá apríl 2021. Herbergjanýting á hótelum var 48,7% og jókst um 34,7 prósentustig frá fyrra ári.
Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands fór aftur af stað í júní 2021 eftir nokkurt hlé. Í undirbúningi er að endurmeta aðferðafræði við áætlun gistinátta utan hefðbundins gistináttamarkaðar og er ráðgert að taka upp áætlun á fjölda gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður að nýju þegar endurmati er lokið.
Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2022 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir apríl 2022. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.