FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. MAÍ 2023

Skráðar gistinætur í apríl hafa aldrei verið fleiri eða 563.000 sem er um 23% aukning frá fyrra ári (458.900) og 17% aukning frá fyrra metári 2017 (480.300).

Gistinætur erlendra ferðamanna í apríl voru um 78% gistinátta, eða um 441.000, sem er 33% aukning frá fyrra ári (332.300). Gistinætur Íslendinga voru um 122.000 sem er 4% minna en á fyrra ári (126.600). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 430.000 og um 133.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.). Áætlaður fjöldi erlendra gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í apríl var um 98.000.

Gistinætur á hótelum í apríl voru 366.700 sem er 25% aukning frá fyrra ári (292.500). Hótelgisting jókst í öllum landshlutum nema á Norðurlandi samanborið við apríl 2022. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 293.400, eða 80% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 73.300 (20%). Gistinætur erlendra ferðamanna jukust um 36% á sama tíma og gistinóttum Íslendinga fækkaði um 5%.

Framboð hótelherbergja í apríl jókst um 5,9% frá apríl 2022. Herbergjanýting á hótelum var 58,0% og jókst um 7,9 prósentustig frá fyrra ári.

Áætlun sem byggir á svörum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands er nú uppfærð fyrir apríl og samkvæmt henni var áætlaður fjöldi gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar um 98.000. Gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða voru um 1.200. Gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, voru um 24.000.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í júní 2017 og Hagstofa Íslands birtir áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggir á niðurstöðum hennar. Þar eru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er í gegnum heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og einnig hjá vinum, ættingjum, í húsaskiptum eða þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir gistingu. Vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli í kjölfar kórónuveirufaraldursins lá landamærarannsóknin að mestu niðri frá maí 2020 til maí 2021 og má ætla að fjöldi erlendra gistinátta á því tímabili hafi verið hverfandi þá mánuði sem rannsóknin var ekki framkvæmd.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2022 og 2023 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir apríl 2023. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.