FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. MAÍ 2024

Skráðar gistinætur í apríl voru um 491.000 sem er um 13% minna en í apríl 2023 (563.000). Fjöldi gistinátta á hótelum var 330.700 sem er 9,7% minna en í apríl í fyrra.

Gistinætur erlendra ferðamanna í apríl voru um 76% gistinátta, eða um 375.000, sem er 15% fækkun frá fyrra ári (441.000). Gistinætur Íslendinga voru um 116.000 sem er 4,7% minna en í apríl í fyrra (122.000). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 380.000 og um 111.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.).

Gistinætur á hótelum í apríl voru 330.700 eða 9,7% færri en á fyrra ári (366.200). Töluverður samdráttur var í hótelgistingu í öllum landshlutum, þar af hlutfallslega mestur á Austurlandi (-18%) og Norðurlandi (-17%). Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum á hótelum í apríl um 10% á milli ára.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 251.100, eða 75,9% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 79.700 (24,1%). Fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna dróst saman um 13,6% á milli ára en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 5,5%.

Framboð hótelherbergja í apríl jókst um 3,1% miðað við apríl 2023. Á sama tíma dróst herbergjanýting á landinu saman um 7,1 prósentustig. Herbergjanýting dróst saman í öllum landshlutum, mest á Suðurlandi (-10,7) og Norðurlandi (-7,7).

Áætlað er að óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í heimagistingu í apríl hafi verið um 61.000 í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu og um 10.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í húsbílum hafi verið um 3.000.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2023 og 2024 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir apríl 2024. Endanlegar tölur fyrir gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum á árinu 2023 verða birtar 7. júní næstkomandi.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.