FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 29. JANÚAR 2021

Heildarfjöldi greiddra gistinátta árið 2020 var 2.961.000 samkvæmt fyrstu áætlun og fækkaði um 65% frá árinu 2019. Þar af voru 1.944.000 gistinætur á hótelum og gistiheimilum (66% fækkun) og 1.018.000 á öðrum gististöðum (61% fækkun). Íslenskar gistinætur voru um 1.391.000 en gistinætur erlendra ferðamanna um 1.570.000. Verið er að yfirfara tölur um gistinætur fyrir árið 2020.

Greiddar gistinætur á öllum tegundum gististaða í desember síðastliðnum drógust saman um 91% samanborið við desember 2019. Þar af fækkaði gistinóttum á hótelum um 93%, um 79% á gistiheimilum og um 85% á öðrum tegundum skráðra gististaða (farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.).

Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 45.000 í desember en þær voru um 509.000 í sama mánuði árið áður. Um 77% gistinátta voru skráðar á Íslendinga, eða um 35.000, en um 23% á erlenda gesti eða um 10.000 nætur. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 31.000, þar af 21.300 á hótelum.

Þar sem landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands liggur niðri, vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli, var ekki unnt að áætla fjölda erlendra gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður en þær voru um 64.000 í desember 2019.

Framboð hótelherbergja í desember minnkaði um 42% frá desember 2019. Herbergjanýting á hótelum var 6,8% og dróst saman um 44,6 prósentustig frá fyrra ári.

Framboð og nýting hótelherbergja í desember
  Herbergjafjöldi á hótelum í desember Herbergjanýting hótela í desember
2019 2020 % 2019 2020 prst
Alls10.8896.288-42,3%51,4%6,8%-44,6
Höfuðborgarsvæði5.3992.608-51,7%69,3%7,7%-61,6
Suðurnes956810-15,3%39,7%8,9%-30,8
Vesturland og Vestfirðir803576-28,3%19,7%3,1%-16,6
Norðurland1.093687-37,1%19,2%5,9%-13,3
Austurland360208-42,2%19,9%7,3%-12,6
Suðurland2.2781.399-38,6%45,4%6,0%-39,4

Mikill samdráttur í hótelgistingu var á milli ára í öllum landshlutum en mestur á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum í desember fækkaði úr 206.000 í 10.100 á milli ára eða um 95%. Á sama tíma dróst framboð hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu saman um 52% á milli ára um leið og herbergjanýting féll um 61,6 prósentustig og var hún 7,7% í desember.

Gistinætur á hótelum
  Desember   Janúar-desember  
2019 2020 % 2019 2020 %
Alls307.18621.277-934.533.0651.488.376-67
Höfuðborgarsvæði206.00810.138-952.511.541727.917-71
Suðurnes22.3412.768-88399.671116.999-71
Vesturland og Vestfirðir8.410979-88247.760119.307-52
Norðurland10.1062.168-79338.289167.416-51
Austurland3.739673-82118.38454.814-54
Suðurland56.5824.551-92917.420301.923-67
Þjóðerni
Íslendingar32.20917.500-46438.779536.59422
Erlendir gestir274.9773.777-994.094.286951.782-77

Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum í desember drógust saman um nærri 99% á milli ára en íslenskum gistinóttum fækkaði um 46%. Gistinætur Íslendinga voru 17.500, eða 82% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 3.800 eða 18%.

Árið 2020 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 1.488.000 sem er 67% fækkun frá árinu 2019. Gistinóttum á árinu fækkaði um 67-71% á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi en í öðrum landshlutum nam fækkunin um 50%-54%.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Eins og fyrr greinir koma fáar brottfarir frá Keflavíkurflugvelli í veg fyrir öflun gagna fyrir landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands og liggur hún því niðri þar til aðstæður breytast. Á meðan eru ekki birtar áætlaðar tölur um gistinætur utan hefðbundinnar gistináttaskráningar. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir árið 2020 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela en fyrir þær eru bráðabirgðatölur fyrir desember 2020. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.