Gistinætur á öllum tegundum skráðra gististaða á árinu 2021 voru um 5,1 milljón samanborið við 3,3 milljónir árið 2020 og hafa því aukist um 55% á milli ára. Íslenskar gistinætur voru um 40% gistinátta eða um 2,0 milljónir en voru 1,5 milljónir á fyrra ári. Um 60% gistinátta voru erlendar eða um 3,1 milljón samanborið við 1,8 milljónir árið áður.
Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 3,3 milljónir (þar af 2,5 milljónir á hótelum) og um 1,8 milljónir á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.). Í samanburði við árið 2019 hefur skráðum gistinóttum fækkað um 39%. Þar af nemur fækkunin um 46% á hótelum, 36% á gistiheimilum og 30% á öðrum tegundum gististaða.
Í desember síðastliðnum voru gistinætur á skráðum gististöðum 307.500 samanborið við 44.000 árið áður. Íslenskar gistinætur voru um 26% gistinátta eða um 78.900 og þær erlendu um 228.700 (74%). Íslensku gistinæturnar jukust um 67,8% á milli ára en þær erlendu um 32,2%.
Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 233.300 (þar af 202.600 á hótelum) og um 74.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.). Í samanburði við desember 2019 fækkaði gistinóttum í desember um 30,9%. Þar af nemur fækkunin um 34% á hótelum, 38% á gistiheimilum og 16% á öðrum tegundum gististaða.
Gistinætur á hótelum í desember voru 202.600 og jókst hótelgisting í mánuðinum í öllum landshlutum. Mest var hlutfallsleg aukning á höfuðborgarsvæðinu.
Framboð hótelherbergja í desember jókst um 76% frá desember 2020. Herbergjanýting á hótelum var 33% og jókst um 26,2 prósentustig frá fyrra ári.
Gistinætur Íslendinga voru 47.100, eða 23% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 155.500 (77%).
Á árinu 2021 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 2.459.000 sem er 65% aukning frá árinu áður. Aukning var í öllum landshlutum á þessu tímabili.
Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands fór aftur af stað í júní síðastliðnum eftir nokkurt hlé. Í undirbúningi er að endurmeta aðferðafræði við áætlun gistinátta utan hefðbundins gistináttamarkaðar og er ráðgert að taka upp áætlun á fjölda gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður að nýju að áliðnum vetri.
Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2021 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir desember 2021. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.