Samkvæmt fyrstu tölum um gistinætur á árinu 2022 voru gistinætur á öllum tegundum skráðra gististaða á árinu 2022 um 8,8 milljónir samanborið við fimm milljónir árið 2021 og hafa því aukist um 77% á milli ára. Gistinætur Íslendinga voru um 21% gistinátta eða um 1,9 milljónir sem er um 4% samdráttur frá fyrra ári. Um 79% gistinátta voru erlendar eða um 6,9 milljón samanborið við 3,1 milljónir árið áður.
Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um sex milljónir (þar af 4,7 milljónir á hótelum) og um 2,9 milljónir á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.).
Hagstofa Íslands birtir nú á ný áætlaðan fjölda gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar og ná tölurnar frá maí til desember 2022. Áætlað er að erlendar gistinætur í heimagistingu gegn um Airbnb yfir þessa mánuði hafi verið um 969.000, gistinætur í húsbílum utan gjaldskyldra tjaldsvæða hafi verið um 66.000 og um 215.000 hjá vinum og ættingjum. Í desember er áætlað að erlendar gistinætur hafi verið um 56.000 gegn um Airbnb og um 25.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi erlendra gistinátta í húsbílum hafi verið hverfandi. Unnið er að áætluðum tölum um fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar á milli júní 2021 og apríl 2022.
Í desember síðastliðnum voru gistinætur á skráðum gististöðum 454.400 og er það aukning um 66% frá fyrra ári (273.200). Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 78% gistinátta, eða um 354.500, sem er 72% aukning frá fyrra ári (205.800). Gistinætur Íslendinga voru um 99.900 sem er 48% aukning frá fyrra ári (57.100). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 356.800 og um 97.600 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.).
Á árinu 2022 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.699.500 sem er 91% aukning frá árinu áður. Aukning var í öllum landshlutum á þessu tímabili.
Gistinætur á hótelum í desember voru 316.300 og jókst hótelgisting í öllum landshlutum samanborið við desember 2021. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 252.400, eða 80% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 63.900 (20%). Gistinóttum erlendra ferðamanna fjölgaði um 62% og þeim íslensku um 36%.
Framboð hótelherbergja í desember jókst um 4% frá desember 2021. Herbergjanýting á hótelum var 50,8% og jókst um 15,9 prósentustig frá fyrra ári.
Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í júní 2017 og birti Hagstofa Íslands til skamms tíma áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggði á niðurstöðum hennar. Þar voru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er gegn um heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og hjá vinum og ættingjum. Vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli í kjölfar kórónuveirufaraldursins lá landamærarannsókn niðri frá apríl 2020 til maí 2021 og lögðust þessar áætlanir af sumarið 2020.
Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2022 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir desember 2022. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.