Gistinætur á hótelum í desember voru tæplega 335.000 á landsvísu eða tæplega 13,4% fleiri en á sama tíma árið 2023 þegar þær voru rúmlega 295.000. Gistinóttum fjölgaði töluvert í öllum landshlutum nema á Austurlandi (-1,9%) og var aukningin mest á Suðurlandi (22,9%) og Suðurnesjum (17,0%). Þá var um 13,3% aukning á Norðurlandi og 10,9% á höfuðborgarsvæðinu. Loks var lítilsháttar fjölgun á gistinóttum á Vesturlandi og Vestfjörðum eða aðeins 1,7%.
Framboð hótelherbergja í desember jókst um tæplega 2,1% miðað við sama tíma árið 2023 og var aukningin mest á Suðurnesjum þar sem framboðið jókst um 15,3%. Þá var um 9,3% aukning á herbergjaframboði á Suðurlandi og 6,6% aukning á Vesturlandi og Vestfjörðum. Litlar breytingar voru á höfuðborgarsvæðinu (0,9%) en töluverð fækkun var á hótelherbergjum á Austurlandi (-34,5%) og að minna leyti á Norðurlandi (-5,3%).
Herbergjanýting jókst í öllum landshlutum nema á Vesturlandi og Vestfjörðum (-1,1 prósentustig). Alls mældist aukningin á landinu í heild sinni 6,1 prósentustig og var hún mest á höfuðborgarsvæðinu (7,9 prósentustig). Þá jókst herbergjanýting einnig umtalsvert á Austurlandi (5,7 prósentustig) og Suðurlandi (6,1 prósentustig). Minni aukning var hins vegar á Norðurlandi (2,0 prósentustig) og Suðurnesjum (0,7 prósentustig).
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í desember tæplega 454.000. Þetta var 12,2% aukning miðað við sama tíma árið 2023 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 405.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða rúmlega 379.000 (335.000 á hótelum og 44.000 á gistiheimilum) en um 75.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).
Rúmlega 6,4 milljónir gistinátta árið 2024
Gistinætur á hótelum og gistiheimilum töldu alls rúmlega 6,4 milljónir árið 2024 samanborið við tæplega 6,6 milljónir árið 2023. Þeim fækkaði því um tæplega 135 þúsund á milli ára eða 2,1%. Gistinætur á öðrum tegundum skráðra gististaða voru um 3,2 milljónir sem var um 300 þúsund meira en árið 2023 þegar þær voru um 2,9 milljónir. Loks fækkaði gistinóttum á hótelum lítillega en þær töldu alls 5.240.300 árið 2024 sem var 0,3% minna en árið 2023 þegar þær voru 5.258.000.
Gistinóttum á hótelum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem aukningin var 6,1%. Mest fækkaði gistinóttum á Austurlandi (-17,3%) og Suðurnesjum (-8,5%). Líkt og áður voru gistinætur á höfuðborgarsvæðinu um 53% af öllum hótelgistinóttum árið 2024 og var fjöldi þeirra nær óbreyttur á milli ára. Um fjórðungur gistinátta tilheyrði svo Suðurlandi.
Endurskoðun gagna eftir þjóðerni og óskráðar gistinætur
Unnið er að endurskoðun á flokkun gagna um gistinætur og er því ekki unnt að birta sundurliðun á fjölda gistinátta eftir þjóðerni að svo stöddu. Á meðan unnið er að frekari skoðun á gögnunum verður því tölfræði um gistinætur ekki birt eftir þjóðerni gesta. Rétt er þó að geta þess að ekki er ástæða til að véfengja heildarfjölda gistinátta.
Þar sem útreikningar á áætluðum óskráðum gistinóttum erlendra ferðamanna byggja á upplýsingum um fjölda gistinátta eftir þjóðerni er sömuleiðis ekki unnt að birta staðfestar tölur um áætlaðar óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna hér á landi í desember.
Um gögnin
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2024 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir desember 2024.