Greiddar gistinætur á öllum tegundum gististaða í febrúar síðastliðnum drógust saman um 84% samanborið við febrúar 2020. Þar af fækkaði gistinóttum á hótelum um 87%, um 74% á gistiheimilum og um 67% á öðrum tegundum skráðra gististaða (farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.).
Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 89.000 í febrúar en þær voru um 555.000 í sama mánuði árið áður. Íslenskar gistinætur voru um 79.000, sem er 48% aukning frá fyrra ári. Um 88% gistinátta voru skráðar á Íslendinga og 12% á erlenda gesti, eða um 10.000 nætur. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 55.000, þar af 41.900 á hótelum.
Framboð hótelherbergja í febrúar minnkaði um 37% frá febrúar 2020. Herbergjanýting á hótelum var 12,7% og dróst saman um 47,8 prósentustig frá fyrra ári.
Framboð og nýting hótelherbergja í febrúar | ||||||
Herbergjafjöldi á hótelum í febrúar | Herbergjanýting hótela í febrúar | |||||
2020 | 2021 | % | 2020 | 2021 | prst | |
Alls | 10.805 | 6.809 | -37,0% | 60,5% | 12,7% | -47,8 |
Höfuðborgarsvæði | 5.408 | 2.550 | -52,8% | 79,4% | 10,9% | -68,6 |
Suðurnes | 809 | 815 | 0,7% | 62,4% | 9,6% | -52,8 |
Vesturland og Vestfirðir | 806 | 623 | -22,7% | 34,5% | 13,9% | -20,5 |
Norðurland | 1.144 | 822 | -28,1% | 26,8% | 27,5% | 0,8 |
Austurland | 349 | 214 | -38,7% | 17,4% | 5,1% | -12,2 |
Suðurland | 2.289 | 1.785 | -22,0% | 47,7% | 10,3% | -37,4 |
Gistinætur á hótelum í febrúar voru 41.900 og dróst hótelgisting í mánuðinum saman á milli ára í öllum landshlutum. Mestur var samdrátturinn á höfuðborgarsvæðinu þar sem gistinóttum í febrúar fækkaði úr 222.100 í 13.100 á milli ára, eða um 94%. Á sama tíma dróst framboð hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu saman um 53% á milli ára um leið og herbergjanýting féll um 59 prósentustig og var hún 10,9% í febrúar. Minnstur samdráttur var á Norðurlandi, þar sem gistinóttum fækkaði um 17%. Á meðan framboð hótelherbergja á Norðurlandi dróst saman um 28% frá febrúar 2020 hækkaði herbergjanýting á sama tíma um 0,8 prósentustig, í 27,5%.
Gistinætur á hótelum | ||||||
Febrúar | Mars-febrúar | |||||
2020 | 2021 | % | 2019-2020 | 2020-2021 | % | |
Alls | 334.919 | 41.891 | -87 | 4.536.698 | 933.889 | -79 |
Höfuðborgarsvæði | 222.139 | 13.125 | -94 | 2.525.890 | 333.225 | -87 |
Suðurnes | 25.452 | 3.636 | -86 | 400.208 | 72.005 | -82 |
Vesturland og Vestfirðir | 14.185 | 3.830 | -73 | 248.852 | 101.410 | -59 |
Norðurland | 14.030 | 11.608 | -17 | 333.190 | 162.472 | -51 |
Austurland | 2.815 | 418 | -85 | 118.722 | 50.399 | -58 |
Suðurland | 56.298 | 9.274 | -84 | 909.836 | 214.378 | -76 |
Þjóðerni | ||||||
Íslendingar | 37.380 | 37.066 | -1 | 452.682 | 529.344 | 17 |
Erlendir gestir | 297.539 | 4.825 | -98 | 4.084.016 | 404.545 | -90 |
Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum í febrúar drógust saman um 98% á milli ára en íslenskum gistinóttum fækkaði um 1%. Gistinætur Íslendinga voru 37.000, eða 88% af hótelgistinóttum á meðan erlendar gistinætur voru 4.800 eða 12%.
Á 12 mánaða tímabili frá mars 2020 til febrúar 2021 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 993.900 sem er 79% fækkun frá sama tímabili ári áður.
Þar sem landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands liggur niðri, vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli, var ekki unnt að áætla fjölda erlendra gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður en þær voru um 67.000 í febrúar 2020.
Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Eins og fyrr greinir koma fáar brottfarir frá Keflavíkurflugvelli í veg fyrir öflun gagna fyrir landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands og liggur hún því niðri þar til aðstæður breytast. Á meðan eru ekki birtar áætlaðar tölur um gistinætur utan hefðbundinnar gistináttaskráningar. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2020 og 2021 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela en fyrir þær eru bráðabirgðatölur fyrir febrúar 2021. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir. Verið er að yfirfara tölur um gistinætur fyrir árið 2020. Í ljósi mikilla breytinga sem orðið hafa á gistimarkaði er sú vinna tímafrekari en ella og má búast við einhverjum töfum á birtingu endanlegra talna fyrir árið 2020.