Í febrúar síðastliðnum voru gistinætur á skráðum gististöðum 396.400 samanborið við 89.100 árið áður. Íslenskar gistinætur voru um 26% gistinátta eða um 104.500 og þær erlendu um 292.000 (74%).
Gistinætur í febrúar meira en fjórfölduðust á milli ára og var aukningin fyrst og fremst drifin áfram af fleiri útlendum ferðamönnum. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 310.100 (þar af 271.200 á hótelum) og um 86.400 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.). Í samanburði við febrúar 2020 fækkaði gistinóttum í febrúar um 17%.
Gistinætur á hótelum í febrúar voru 271.200 og jókst hótelgisting í mánuðinum í öllum landshlutum. Mest var hlutfallsleg aukning á höfuðborgarsvæðinu. Gistinætur Íslendinga voru 62.600, eða 23% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 208.700 (77%).
Á tólf mánaða tímabili, frá mars 2021 til febrúar 2022, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 2.819.700 sem er um þrefalt meira en á sama tímabili árið áður. Aukning var í öllum landshlutum á þessu tímabili.
Framboð hótelherbergja í febrúar jókst um 61% frá febrúar 2021. Herbergjanýting á hótelum var 49,3% og jókst um 36,5 prósentustig frá fyrra ári.
Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands fór aftur af stað í júní 2021 eftir nokkurt hlé. Í undirbúningi er að endurmeta aðferðafræði við áætlun gistinátta utan hefðbundins gistináttamarkaðar og er ráðgert að taka upp áætlun á fjölda gistinátta á stöðum sem miðla heimagistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður að nýju þegar endurmati er lokið.
Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2022 og 2021 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir febrúar 2022. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.