FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 27. MARS 2024

Skráðar gistinætur í febrúar voru um 561.000 sem er um 2,5% minna en í febrúar 2023 (575.000). Fjöldi gistinátta á hótelum var 372.700 sem er ögn meira en í febrúar í fyrra.

Gistinætur erlendra ferðamanna í febrúar voru um 79% gistinátta, eða um 443.000, sem er 2,7% samdráttur frá fyrra ári (455.000). Gistinætur Íslendinga voru um 118.000 sem er 1,9% samdráttur frá febrúar í fyrra (120.000). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 429.000 og um 132.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.).

Gistinætur á hótelum í febrúar voru 372.700 eða 0,3% fleiri en á fyrra ári (371.700). Töluverð aukning varð á hótelgistingu í febrúar á Austurlandi (24%), Suðurlandi (9%) og á Vesturlandi og Vestfjörðum (8%) á meðan mikill samdráttur var á Suðurnesjum (-24%). Á höfuðborgarsvæðinu stóð hótelgisting nánast í stað á milli ára.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 305.000, eða 81,8% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 67.700 (18,2%). Fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna stóð nánast í stað á milli ára en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 1,3%.

Framboð hótelherbergja í febrúar jókst um 1,2% miðað við febrúar 2023. Á sama tíma dróst herbergjanýting á landinu saman um 3,7 prósentustig. Herbergjanýting jókst um 1,5 prósentustig á Vesturlandi og Vestfjörðum. Í öðrum landshlutum stóð hún í stað eða dróst saman á milli ára, mest á Suðurnesjum (-9,4) og á Norðurlandi (-7,9).

Áætlað er að óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í heimagistingu í febrúar hafi verið um 82.000 í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu og um 12.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í húsbílum hafi verið um 3.000. Sem stendur er verið að yfirfara aðferðir við skiptingu óskráðra gistinátta erlendra ferðamanna í heimagistingu niður á landshluta og verða nýjar tölur um hana ekki birtar meðan á því stendur.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2023 og 2024 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir febrúar 2024. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.