Gistinætur á hótelum í febrúar voru tæplega 364.000 á landsvísu eða rúmlega 4,5% færri en á sama tíma árið 2024 þegar þær voru rúmlega 381.000. Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum þar sem þeim fjölgaði um 16,6%. Mest fækkaði gistinóttum á Austurlandi eða um 23,2%. Þá var einnig 12,8% fækkun á Vesturlandi og Vestfjörðum og 6,7% fækkun á höfuðborgarsvæðinu. Minni breytingar voru á Suðurlandi (-3,3%) og nær óbreytt staða á Norðurlandi (-0,6%).
Framboð hótelherbergja í febrúar jókst lítillega eða um rúmlega 0,4% miðað við sama tíma árið 2024. Aukning var í öllum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu (-0,7%) og Austurlandi þar sem framboðið dróst saman um rúmlega 24%. Á Suðurlandi jókst framboð herbergja um 4,2% og um 3,7% á Norðurlandi. Þá var lítils háttar aukning á Suðurnesjum (1,1%) og Vesturlandi og Vestfjörðum (1,2%).
Herbergjanýting var nær óbreytt á landinu í heild og mældist aukning í nýtingu um 0,1 prósentustig. Mest jókst herbergjanýting hótela á Suðurnesjum eða um 4,6 prósentustig. Mesta lækkunin var aftur á móti á Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem nýtingin dróst saman um 2,8 prósentustig. Minni breytingar voru í öðrum landshlutum; 0,1 prósentustiga samdráttur á höfuðborgarsvæðinu, 0,5 prósentustiga aukning á Norðurlandi, 1,2 prósentustiga aukning á Austurlandi og 1,1 prósentustiga lækkun á Suðurlandi.
Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í febrúar tæplega 543.000. Þetta var 3,2% fækkun miðað við sama tíma árið 2024 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 561.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða rúmlega 411.000 (364.000 á hótelum og 47.000 á gistiheimilum) en um 132.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).
Endurskoðun gagna eftir þjóðerni og óskráðar gistinætur
Unnið er að endurskoðun á flokkun gagna um gistinætur og er því ekki unnt að birta sundurliðun á fjölda gistinátta eftir þjóðerni að svo stöddu. Á meðan unnið er að frekari skoðun á gögnunum verður því tölfræði um gistinætur ekki birt eftir þjóðerni gesta. Rétt er þó að geta þess að ekki er ástæða til að véfengja heildarfjölda gistinátta.
Þar sem útreikningar á áætluðum óskráðum gistinóttum erlendra ferðamanna byggja á upplýsingum um fjölda gistinátta eftir þjóðerni er sömuleiðis ekki unnt að birta staðfestar tölur um áætlaðar óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna hér á landi í febrúar.
Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2025 eru bráðabirgðatölur nema tölur um gistinætur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir febrúar 2025.