FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 28. FEBRÚAR 2023

Skráðar gistinætur í janúar hafa aldrei verið fleiri en þær voru 449.800 sem er um 86% aukning frá fyrra ári (241.200) og 7,5% aukning frá fyrra metári 2020 (418.300).

Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 79% gistinátta, eða um 356.000 sem er tvöföldun frá fyrra ári (176.300). Gistinætur Íslendinga voru um 93.800 sem er 45% aukning frá fyrra ári (64.900). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 361.300 og um 88.500 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.).

Hagstofa Íslands birtir nú áætlaðan fjölda gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar fyrir árin 2021 og 2022. Áætlað er að gistinætur erlendra ferðamanna í heimagistingu gegn um Airbnb og svipaðar síður hafi verið um 518.000 árið 2021 og um 1.168.000 árið 2022. Gistinætur erlendra ferðamanna í húsbílum utan gjaldskyldra tjaldsvæða eru áætlaðar um 78.000 árið 2021 og 75.000 árið 2022, meðan áætlað er að þær hafi verið um 96.000 hjá vinum og ættingjum árið 2021 og um 264.000 árið 2022. Tölur um gistinætur utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í janúar 2023 liggja ekki fyrir sem stendur.

Gistinætur á hótelum í janúar voru 312.000 sem er 93% aukning frá fyrra ári (161.600) og 7% aukning frá 2020 (291.100). Hótelgisting jókst í öllum landshlutum samanborið við janúar 2022. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 254.300, eða 81% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 57.700 (19%). Gistinætur erlendra ferðamanna rúmlega tvöfölduðust og þær íslensku jukust um 58%.

Framboð hótelherbergja í janúar jókst um 4,6% frá janúar 2022. Herbergjanýting á hótelum var 52,2% og jókst um 23,7 prósentustig frá fyrra ári.

Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í júní 2017 og birtir Hagstofa Íslands nú eftir nokkurt hlé áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggir á niðurstöðum hennar. Þar eru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er gegnum heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og hjá vinum og ættingjum. Vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli í kjölfar kórónuveirufaraldursins lá landamærarannsóknin að mestu niðri frá apríl 2020 til maí 2021 og má ætla að fjöldi erlendra gistinátta á því tímabili hafi verið hverfandi þá mánuði sem rannsóknin var ekki framkvæmd.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2022 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir janúar 2022. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.