FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 29. FEBRÚAR 2024

Skráðar gistinætur í janúar voru um 390.000 sem er um 13% minna en í janúar 2023 (450.000). Fjöldi gistinátta á hótelum var 282.600 sem er 10% samdráttur frá janúar í fyrra.

Gistinætur erlendra ferðamanna í janúar voru um 82% gistinátta, eða um 320.000, sem er 10% samdráttur frá fyrra ári (356.000). Gistinætur Íslendinga voru um 70.000 sem er 26% samdráttur frá janúar í fyrra (94.000). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 316.000 og um 74.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.).

Gistinætur á hótelum í janúar voru 282.600 eða 10% færri en á fyrra ári (312.400). Hótelgisting í janúar dróst saman í öllum landshlutum, mest á Suðurnesjum (-20%) og á Norðurlandi (-18%) en minnst á Suðurlandi (-2%). Á höfuðborgarsvæðinu dróst hótelgisting í janúar saman um 10% á milli ára.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 235.100, eða 83% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 47.500 (17%). Gistinóttum erlendra ferðamanna fækkaði um 8% en gistinóttum Íslendinga um 18%.

Framboð hótelherbergja í janúar jókst um 4% miðað við janúar 2023. Á sama tíma dróst herbergjanýting á landinu saman um sjö prósentustig. Herbergjanýting dróst saman í öllum landshlutum, mest á Austurlandi (-8,1) og á höfuðborgarsvæðinu (-7,4).

Áætlað er að óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í heimagistingu í janúar hafi verið um 69.000 í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu og um 11.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í húsbílum hafi verið um 1.200. Sem stendur er verið að yfirfara aðferðir við skiptingu óskráðra gistinátta erlendra ferðamanna í heimagistingu niður á landshluta og verða nýjar tölur um hana ekki birtar meðan á því stendur.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2023 og 2024 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir janúar 2024. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.