FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. ÁGÚST 2020

Heildarfjöldi greiddra gistinátta í júlí síðastliðnum dróst saman um 57% samanborið við júlí 2019. Þar af fækkaði gistinóttum á hótelum um 56%, um 51% á gistiheimilum og um 49% á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, farfuglaheimilum, orlofshúsum o.s.frv.). Samkvæmt áætlun sem byggir á landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofunnar var enn fremur 87% fækkun á gistinóttum erlendra ferðamanna á stöðum sem miðla gistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður en Hagstofan hefur ekki upplýsingar um fjölda íslenskra gistinátta á stöðum sem miðla gistingu á slíkan máta.

Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 667.000 í júlí en þær voru um 1.557.000 í sama mánuði árið áður. Um 71% gistinátta voru skráðar á Íslendinga, eða um 476.000, en um 29% á erlenda gesti, um 191.000 nætur. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 327.900, þar af 224.400 á hótelum. Gistinætur erlendra ferðamanna á gististöðum sem miðlað var gegnum Airbnb voru um 32.000 og gistinætur á öðrum tegundum gististaða voru um 307.000.

Framboð hótelherbergja minnkaði um 23% frá júlí 2019. Þegar tölur um hótelgistingu eru skoðaðar er ljóst að jafnt í gistinóttum, framboði og nýtingu er mestur samdráttur í kringum höfuðborgarsvæðið en minni á landsbyggðinni. Samdráttur í framboði hótelherbergja er til dæmis áberandi mestur á höfuðborgarsvæðinu eða um 38%, um 14% á Suðurnesjum og Suðurlandi en 3% á öðrum svæðum til samans.

Herbergjanýting á hótelum í júlí var 46,7% og dróst saman um 34 prósentustig frá fyrra ári. Nýtingin var lægst á Suðurnesjum (29,1%) en hæst á Austurlandi (73,3%).

Framboð og nýting hótelherbergja í júlí
  Herbergjafjöldi á hótelum í júlí Herbergjanýting hótela í júlí
2019 2020 % 2019 2020 prst
Alls11.0588.547-22,7%80,7%46,7%-34,0
Höfuðborgarsvæði5.2383.241-38,1%80,1%34,6%-45,5
Suðurnes882731-17,1%88,6%29,1%-59,4
Vesturland og Vestfirðir912866-5,0%70,0%55,5%-14,5
Norðurland1.2141.213-0,1%78,5%70,8%-7,7
Austurland441417-5,4%80,8%73,3%-7,5
Suðurland2.3712.079-12,3%84,6%48,7%-35,8

Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum í júlí drógust saman um 80% á milli ára en íslenskar gistinætur ríflega þrefölduðust. Gistinætur Íslendinga voru 130.400, eða 58% af hótelgistinóttum, á meðan erlendar gistinætur voru 94.000 eða 42%.

Gistinætur á hótelum
  Júlí   Ágúst-júlí  
2019 2020 % 2018-2019 2019-2020 %
Alls507.829224.357-564.463.8983.174.192-29
Höfuðborgarsvæði232.55260.811-742.503.8041.729.644-31
Suðurnes47.16412.078-74358.399262.984-27
Vesturland og Vestfirðir39.00827.361-30252.621192.205-24
Norðurland53.29248.958-8337.877255.350-24
Austurland20.47117.715-13110.27690.255-18
Suðurland115.34257.434-50900.921643.754-29
Þjóðerni
Íslendingar39.656130.386229425.968525.15323
Erlendir gestir468.17393.971-804.037.9302.649.039-34

Á 12 mánaða tímabili, frá ágúst 2019 til júlí 2020, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 3.174.000 sem er 29% fækkun miðað við sama tímabil árið áður.

Samkvæmt áætlun, sem byggir á svörum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands, voru gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða um 7.000 og gistinætur þeirra hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, um 14.000.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun fyrir gistinætur utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggist á niðurstöðum úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands á meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Einnig er byggt á gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar að teknu tilliti til upplýsinga um virðisaukaskattskylda veltu frá Airbnb og bílaleigum sem leggja áherslu á útleigu viðverubúinna húsbíla. Þær aðferðir sem beitt er við áðurnefnda áætlun eru í þróun innan Hagstofu Íslands. Tölur sem birtar eru um ógreiddar gistinætur og gistinætur, sem miðlað er í gegnum vefsíður eru því bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum með hliðsjón af bættum upplýsingum og aðferðum. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir árið 2020 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela, en fyrir þær eru bráðabirgðatölur fyrir júlí 2020. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir í lok árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.