Skráðar gistinætur í júlí voru 1.606.000 sem er um 0,4% aukning frá júlí 2022 (1.599.300). Gistinóttum á hótelum fækkaði um 1,4%.
Gistinætur erlendra ferðamanna í júlí voru um 72% gistinátta, eða um 1.159.000, sem er 1,5% aukning frá fyrra ári (1.141.800). Gistinætur Íslendinga voru um 447.000 sem er 2,3% færra en á fyrra ári (457.500). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 798.000 og um 808.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.). Ennfremur er áætlað að fjöldi erlendra gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar í júlí hafi verið um 220.000.
Gistinætur á hótelum í júlí voru 586.400, eða 1,4% færri en á fyrra ári (594.900). Hótelgisting jókst á Austurlandi og Suðurlandi en dróst saman í öllum öðrum landshlutum samanborið við júlí 2022. Hlutfallsleg fækkun gistinátta var áberandi mest á Suðurnesjum, eða 22,5%, sem gæti að hluta skýrst af því að hluti af framboði hefur verið tekinn undir langtímaleigu og heyrir því ekki undir gistináttatölfræði.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru 485.500, eða 83% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 101.000 (17%). Gistinóttum erlendra ferðamanna fækkaði um 1,1% en gistinóttum Íslendinga fækkaði um 3,0%.
Framboð hótelherbergja í júlí var í heildina svipað og í júlí 2022. Herbergjanýting á landinu dróst saman um 1,9 prósentustig og var mesti samdrátturinn á höfuðborgarsvæðinu og Norðurlandi.
Áætlun sem byggir á svörum erlendra ferðamanna úr landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands er nú uppfærð fyrir júlí og samkvæmt henni var áætlaður fjöldi gistinátta í heimagistingu utan hefðbundinnar gistináttaskráningar um 220.000. Gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða voru um 26.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, voru um 38.000.
Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hófst í júlí 2017 og Hagstofa Íslands birtir áætlaðan fjölda erlendra gistinátta utan hefðbundinnar gistináttaskráningar sem byggir á niðurstöðum hennar. Þar eru áætlaðar erlendar gistinætur í heimahúsum sem miðlað er í gegnum heimasíður, s.s. Airbnb, auk erlendra gistinátta í húsbílum og tjaldvögnum utan gjaldskyldra tjaldsvæða og einnig hjá vinum, ættingjum, í húsaskiptum eða þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir gistingu.
Vegna mikillar fækkunar brottfara frá Keflavíkurflugvelli í kjölfar kórónuveirufaraldursins lá landamærarannsóknin að mestu niðri frá júlí 2020 til júlí 2021 og má ætla að fjöldi erlendra gistinátta á því tímabili hafi verið hverfandi þá mánuði sem rannsóknin var ekki framkvæmd.
Lýsigögn Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Allar tölur fyrir 2023 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir júlí 2023. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.