FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 30. ÁGÚST 2024

Gistinætur á hótelum í júlí voru tæplega 562.900 eða um 5,3% færri en á fyrra ári (594.600). Gistinóttum fjölgaði um 5,7% á Norðurlandi en fækkaði töluvert á hótelum í öðrum landshlutum. Mest var breytingin á Austurlandi (-19,2%) og Vesturlandi og Vestfjörðum (-16,6%) en gistinóttum fækkaði um 5,0% á hótelum á höfuðborgarsvæðinu.

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 449.100, eða 80% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 113.800 (20%). Gistinætur erlendra ferðamanna voru 8,4% færri en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 9,1%.

Framboð hótelherbergja í júlí jókst um 1,7% miðað við júlí 2023. Á sama tíma dróst herbergjanýting á landinu saman um 5,9 prósentustig. Herbergjanýting dróst saman í öllum landshlutum nema Norðurlandi. Mesta breytingin var á Austurlandi (-13,6) og Vesturlandi og Vestfjörðum (-12,2).

Allir gististaðir
Áætlaður heildarfjöldi gistinátta á öllum skráðum gististöðum í júlí var um 1.506.000 sem er 2,6% færra en í júlí 2023 (1.547.000).

Gistinætur erlendra ferðamanna í júlí voru samkvæmt því um 71% gistinátta, eða um 1.071.000, sem er 6,6% fækkun frá fyrra ári (1.146.000). Gistinætur Íslendinga voru um 436.000 sem er 8,5% aukning frá júlí í fyrra (401.000). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 771.000 og um 735.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæði, orlofshús o.s.frv.).

Óskráðar gistinætur
Áætlað er að þar fyrir utan hafi óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í júlí verið um 150.000 í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu og um 20.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í húsbílum hafi verið um 10.000.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2024 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir júlí 2024.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.