FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 29. JÚLÍ 2022

Gistinætur á skráðum gististöðum voru um 1.125.600 í júní síðastliðnum samanborið við 486.000 árið áður. Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 80% gistinátta eða um 896.300 sem er tæplega fjórföld aukning frá fyrra ári (243.000). Gistinætur Íslendinga voru um 229.300 og er það fækkun um 6% frá fyrra ári .Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 706.800 (þar af 496.400 á hótelum) og um 418.800 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús, tjaldsvæði o.s.frv.).

Gistinætur á hótelum í júní voru 496.400 og jókst hótelgisting í öllum landshlutum samanborið við júní 2021. Mest var hlutfallsleg aukning á höfuðborgarsvæðinu, eða 220%. Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum tæplega fjórfölduðust milli ára og voru 405.000. Gistinætur Íslendinga voru 91.400 og er það aukning um 9% frá fyrra ári.

Á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2021 til júní 2022, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 3.870.300 sem er tæplega fjórfalt meira en á sama tímabili árið áður. Aukning var í öllum landshlutum á þessu tímabili.

Framboð hótelherbergja í júní jókst um 29% frá júní 2021. Herbergjanýting á hótelum var 78,8% og jókst um 38,8 prósentustig frá fyrra ári.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Frá vorinu 2020 gaf Hagstofan um tíma út áætlun út frá fyrstu skilum fyrir gistinætur á hótelum. Þeirri útgáfu hefur nú verið hætt.

Allar tölur fyrir 2022 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir júní 2022. Áætlun fyrir aðrar tegundir gististaða en hótel er um þessar mundir háð meiri óvissu en vanalega fyrir tilstilli örra breytinga á framboði og nýtingu og því er rétt að taka þeim tölum með sérstökum fyrirvara þar til endanlegar tölur liggja fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.