FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 31. JÚLÍ 2024

Vinsamlegast athugið að þessi fréttatilkynning var leiðrétt 31. júlí 2024 kl. 14.00 frá upprunalegri útgáfu. Leiðréttingin hafði áhrif á tölur um gistinætur á höfuðborgarsvæðinu. Einnig hafði leiðréttingin áhrif á rúmnýtingu á hótelum á höfuðborgarsvæðinu.

Gistinætur á hótelum í júní voru tæplega 479.500 eða um 6% færri en á fyrra ári (510.000). 1% aukning mælist á höfuðborgarsvæðinu en töluvert færri gistinætur mældust á hótelum í öðrum landshlutum, mesta breytingin var á Austurlandi (-27%) og Suðurnesjum (-17%).

Gistinætur erlendra ferðamanna voru 381.900, eða 80% af hótelgistinóttum, á meðan gistinætur Íslendinga voru 97.600 (20%). Fjölda gistinátta erlendra ferðamanna fækkaði um 8% en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 5%.

Framboð hótelherbergja í júní jókst um 1,3% miðað við júní 2023. Á sama tíma dróst herbergjanýting á landinu saman um 6,0 prósentustig. Herbergjanýting dróst saman í öllum landshlutum nema Norðurlandi. Mesta breytingin var á Austurlandi (-20,6) og Vesturlandi og Vestfjörðum (-10,1).

Allir gististaðir
Áætlaður heildarfjöldi gistinátta á öllum skráðum gististöðum í júní var um 1.099.800 sem er sambærilegt við júní 2023 (1.099.900).

Gistinætur erlendra ferðamanna í júní voru samkvæmt því um 77% gistinátta, eða um 846.100, sem er 1% fækkun frá fyrra ári (858.400). Gistinætur Íslendinga voru um 253.700 sem er 5% aukning frá júní í fyrra (241.500). Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 655.500 og um 444.300 á öðrum tegundum skráðra gististaða (íbúðagisting, orlofshús o.s.frv.).

Óskráðar gistinætur
Áætlað er að þar fyrir utan hafi óskráðar gistinætur erlendra ferðamanna í júní verið um 130.000 í gegnum vefsíður sem miðla heimagistingu og um 13.000 hjá vinum og ættingjum en að fjöldi gistinátta erlendra ferðamanna í húsbílum hafi verið um 4.000.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir skráða gististaði koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2024 eru bráðabirgðatölur nema gistináttatölur hótela þar sem bráðabirgðatölur eru fyrir júní 2024.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.